Grunnskólamót í Þytsheimum nk. sunnudag

Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra verður haldið í reiðhöllinni Þytsheimum á Hvammstanga nk. sunnudag, þann 10. mars, kl.  13:00. Þetta er annað mótið í vetur og keppt verður í fegurðarreið 1.-3. bekkur, tölt 4. - 7. bekkur, tölt 8. - 10. bekkur og skeið 8. - 10. bekkur ef veður og aðstæður leyfa.

Á heimasíðu hestamannafélagsins Þyts segir að skráningar þurfa að berast fyrir miðnætti í dag, miðvikudaginn 6. mars, á netfangið:  thyturaeska@gmail.com.  Við skráningu skal koma fram: nafn, bekkur og skóli knapa. Nafn hests og uppruni, aldur og litur. Keppnisgrein og upp á hvora hönd skal riðið.

Skráningargjald er 1000 krónur fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur fyrir næstu skráningar og skal greiða á mótsstað (með peningum - kort ekki tekin) áður en mót hefst.

Um reglur keppninnar má lesa á heimasíðu hestamannafélagsins.

Fleiri fréttir