Guðmundur Þór sigraði Byrðuhlaupið á nýju meti
Byrðuhlaup Ungmennafélagsins Hjalta var haldið laugardaginn 13.ágúst síðastliðinn í 3.sinn í blíðskaparveðri sem hafði sitt að segja um þann árangur sem náðist í hlaupinu. Hlaupið er ræst í hliði sem liggur inná tjaldsvæði Hólaskógar og hlaupið eftir vegum og göngustígum upp í Gvendarskál. Að þessu sinni spreyttu 8 hlauparar sig og luku þeir allir hlaupinu með sóma. Byrðuhlaupari ársins er Guðmundur Þór Elíasson Vestur-Húnvetningur og hrossabóndi á Varmalæk 1 og setti hann nýtt met á leiðinni þegar hann hljóp á 29,30 mínútum.
Fast á hæla hans kom Nökkvi Már Víðisson (14 ára) frá Kjarvalsstöðum á 29,37 mín en hann varð fyrir því óhappi að detta á endasprettinum. Til marks um góðan árangur hlauparanna voru fyrstu 5 hlaupararnir undir gamla metinu sem Guðmundur Elí Jóhannsson (12 ára) átti og voru 34,09 mínútur. Guðmundur Elí er jafnframt eini hlauparinn sem hefur tekið þátt í Byrðuhlaupinu öll þau 3 skipti sem það hefur verið haldið en að þessu sinni hljóp hann þrátt fyrir að vera hálf-lasinn. Fyrst kvenna var Sigríður Vaka Víkingsdóttir (12 ára) á 33,37 mínútum og er það nýtt met í kvennaflokki. Sigurvegarar í karla og kvennaflokki fengu veglega verðlaunapeninga og Byrðuhlaupari ársins fékk farandbikarinn til vörslu í eitt ár.
Ungmennafélagið Hjalti færir þeim sem aðstoðuðu við hlaupið og undirbúning þess bestu þakkir fyrir ómetanlega aðstoð.
Texti og myndir Guðrún Stefánsdóttir