Guðrún Gróa hefur sagt skilið við kraflyftingar
Íþróttakonan Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir úr Hrútafirði hefur ákveðið að skipta aftur á milli íþróttagreina. Á Mbl.is kemur fram að hún hefur sagt skilið við kraftlyftingarnar eftir eitt ár á fullu á þeim vettvangi og ætlar að spila á ný með KR í körfuboltanum í vetur.
Þá sagði Guðrún Gróa í samtali við Mbl.is að hún hefði ekki haft nægilega mikla ánægju af því að keppa eingöngu í kraftlyftingum.
„Mér fannst ég vera komin á stað þar sem ég var rekin áfram af græðgi í árangur og gleymdi gleðinni og út á hvað þetta gengur í grunninn. Ég kunni einfaldlega betur við mig í körfunni og fann mig ekki nægilega vel í lyftingunum,“ sagði Guðrún Gróa.