Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir íþróttamaður USVH 2011
Íþróttamaður USVH árið 2011 var kjörin Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir körfubolta- og kraftlyftingakona frá Reykjum í Hrútafirði en hún hlaut 43 stig í kjörinu. Í öðru sæti varð Helga Una Björnsdóttir hestaíþróttakona með 36 stig og í þriðja sæti varð Helga Margrét Þorsteinsdóttir frjálsíþróttakona með 29 stig. Aðrir sem hlutu tilnefningar í kjöri íþróttamanns USVH voru Reynir Aðalsteinsson og Tryggvi Björnsson hestaíþróttamenn og Hrund Jóhannsdóttir körfuknattleikskona.
Guðrúnu Gróu hlaut farandbikar auk eignarbikars og einnig 50 þúsund króna gjafakort frá Landsbankanum á Hvammstanga. Guðrún Gróa hefur áður verið kjörin íþróttamaður USVH, en Helga Margrét systir hennar var kjörinn íþróttamaður USVH síðustu fjögur ár.
Guðrún Gróa kláraði keppnistímabilið í körfubolta með KR með því að vera valin besti varnarmaðurinn í Iceland Express-deild kvenna í körfubolta. Síðan snéri hún sér alfarið að kraftlyftingum og fór að keppa fyrir kraftlyftingadeild Ármanns. Hún hafði um tíma æft báðar þessar íþróttagreinar. Í mars keppti Guðrún á Íslandsmeistaramóti í kraftlyftingum sem haldið var í Njarðvík. Hún setti fjölmörg Íslandsmet en lyfti samtals 415,0 kg (í flokki -84,0 kg) og varð í öðru sæti í stigakeppninni, sem er mjög gott því hún er ekki nema 72,8 kg að þyngd sjálf. Í júní keppti Guðrún á Kópavogsmótinu í bekkpressu sem haldið var í Smáranum. Hún setti Íslandsmet í unglingaflokki (19-23 ára) lyfti 90 kg í bekkpressu og sigraði stigakeppnina í kvennaflokki (72 kg flokki milliþunga). Í lok nóvember keppti Guðrún á Bikarmóti Kraftlyftingasambands Íslands. Þar setti hún unglingamet í öllum þremur greinunum, hnébeygju, bekkpressu og réttstöðu, hún lyfti m.a. 160 kg í hnébeygju. Þá setti hún einnig unglingamet í samanlögðum árangri. Guðrún keppir nú fyrir Kraftlyftingadeild Gróttu.
Íþróttamenn USVH geta orðið þeir íþróttamenn 16 ára og eldri sem lögheimili eiga í Húnaþingi vestra eða keppa undir merkjum félaga innan USVH. Það eru stjórnarmenn í aðildarfélögum USVH og stjórn USVH sem kjósa íþróttamanninn.