Guðrún Gróa valin besti varnarmaðurinn
feykir.is
Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla
12.05.2014
kl. 09.15
Lokahóf KKÍ var haldið föstudagskvöldið 9. maí síðastliðinn í Laugardalshöllinni, en þar voru leikmenn í Domino´s deild karla og kvenna 2013-2014 verðlaunaðir.
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir frá Reykjum í Hrútafirði var valin besti varnarmaður í Domino´s deild kvenna 2013-2014, auk þess að vera valin í úrvalslið deildarinnar. Guðrún Gróa hefur spilað með liði Snæfells frá því síðasta sumar.