Gullhylur reiðubúinn að semja um landsmót hestamanna 2016
Mikil umræða hefur farið fram á hestamiðlum landsins um ákvörðun um staðarval fyrir landsmót hestamanna 2014 og 2016. Hefur hestamannafélagið Funi í Eyjafirði mótmælt ákvörðun LH opinberlega þar sem það sótti um mótið 2014 en eins og kunnugt er var ákveðið að ganga til samninga við Rangárbakka (Hella) fyrir 2014 og 2016 við Gullhyl (Vindheimamelar).
Feykir.is sagði frá ákvörðun stjórnar LH og að ekki hefði verið sótt um að halda mótið 2016 af hálfu Gullhyls. Þessu mótmælir Gullhylur og segir að málið sé byggt á misskilningi. Sótt hafi verið um að halda mótið bæði árin en áherslan verið lögð á að fá mótið 2014 á Vindheimamela.
Yfirlýsing frá hestamannafélögunum í Skagafirði og Gullhyl
Síðastliðinn mánudag tók stjórn Landssambands hestamannafélaga ákvörðun um staðarval fyrir landsmót hestamanna 2014 og 2016. Ákvað stjórn LH að ganga að samningsborði fyrir Landsmót 2014 við Rangárbakka (Hella) og fyrir Landsmót 2016 við Gullhyl (Vindheimamelar).
Harma stjórnir hestamannafélaganna í Skagafirði og Gullhyls ákvörðun stjórnar LH um að rjúfa með þessu þá áratugalöngu hefð að halda landsmót hestamanna til skiptis á Norður- og Suðurlandi. Eigi að síður lýsa stjórnirnar sig reiðubúnar til að ganga til viðræðna við stjórn LH um landsmót hestamanna 2016 á Vindheimamelum í Skagafirði svo sem segir í umsókn félaganna þar að lútandi, fyrst ákvörðun liggur fyrir um að halda mótið 2014 á Rangárbökkum.
Virðingarfyllst,
Stjórnir hestamannafélaganna í Skagafirði og Gullhyls