Hádegistónleikar í dag
Í dag klukkan korter yfir tólf verða hádegistónleikar í Miklabæjarkirkju. Tónleikarnir eru hluti af menningarhátíðinni listaflóð á Vígaslóð, sem Grundarhópurinn stendur að. Bera þeir yfirskriftina „Frændur á ferð í fallegri sveit.“ Frændurnir sem um ræðir eru Árni Geir Sigurbjörnsson tenór og Sveinn Arnar Sæmundsson organisti Akraneskirkju. Flytja þeir íslenskar söngperlur.
Aðgangseyrir er ókeypis en tekið er á móti frjálsum framlögum.