Hagnaður KS á síðasta ári 1,7 milljarðar
Aðalfundur Kaupfélags Skagfirðinga var haldinn laugardaginn 12. apríl 2014. Í ársskýrslu fyrir síðasta ár kemur fram að hagnaður ársins var 1,7 milljarðar króna á móti 2,2 milljörðum árið áður. Eigin fjárhlutfall er nú um 67% en eigið fé fyrirtækisins er um 21,5 milljarðar. Veltufé frá rekstri var 2,7 milljarðar í árslok.
Í inngangi Þórólfs Gíslasonar að ársskýrslu kemur fram að starfsemi félagsins hefur tekið miklum stakkaskiptum síðasta aldarfjórðunginn. Síðan árið 1989 hefur t.a.m. sjávarútvegur fjórfaldast að umfangi, sauðfjárslátrun fjórfaldast og vinnsla mjólkurafurða þrefaldast.
Stærstu einstöku fjárfestingarnar á síðasta ári voru í Mjólkursamlagi, þar sem lokið var uppsetningu á nýrri framleiðslulínu fyrir ostavinnslu og bygging nýrrar þurrkstöðvar á vegum FISK Seafood hf. á hafnarsvæðinu á Sauðárkróki. Þá keypti Kaupfélagið 15% eignarhlut í Steinullarverksmiðjunni á á nú alls 39,5% hlutafjár í verksmiðjunni.
Helstu tölur úr rekstrarreikningi (samstæðu):
Rekstrartekjur 28.571.230
Rekstrargjöld 24.873.750
Hagnaður f.afskriftir 3.697.480
Afskriftir 963.972
Hagnaður f.fjármagnsliði 2.733.08
Fjármagnsgjöld 522.529
Tekjuskattur 532.154
Aðrir liðir 25.196
Hagnaður ársins 2013 1.704.021
Nánar verður fjallað um ársskýrslu KS í næsta Feyki, sem kemur út 22. apríl næstkomandi.