Handbendi leitar að lærlingi í sviðslistum
Handbendi – Brúðuleikhús er atvinnubrúðuleikhús Norðurlands vestra. Þar er nú opið fyrir umsóknir um tímabundna stöðu lærlings í sviðslistum sem myndi aðstoða við sköpun nýs brúðuverks sem kallast Tröll. Verkið mun fara um Ísland 2017, áður en það heldur í leikferðalag um Bretland og Evrópu. Um er að ræða launað starf, styrkt af Samtökum Sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV), fyrir ungan einstakling á aldrinum 16-26 ára sem hefur áhuga á því að læra til verka og öðlast reynslu af stjórnun í listageiranum, brúðuleikhúsi, og leikhúsframleiðslu.
Einstaklingurinn sem fyrir valinu verður mun taka þátt í öllum þáttum sköpunarferlis nýrrar frumsaminnar sýningar, þ.m.t. brúðusmíði, framleiðslustjórnun, handritsþróun, og vinna með leikstjóra og leikurum. Hægt er að vera lærlingur hjá Handbendi meðfram skóla.
„Handbendi telur mikilvægt að rækta hæfileika heimafólks og skapa aðgengi að reynslu í atvinnugeira listsköpunar, sem oft er af skornum skammti utan þéttbýlisstaða. Fyrir margt ungt fólk sem hefur áhuga á að leggja geirann fyrir sig getur leikhúsið, og sviðslistir almennt, sýnst vera lokaður klúbbur, sérstaklega fyrir þá sem hafa ekki tök á því að borga með sér. Handbendi telur lærlingsstöður mikilvægar til að fólk þrói með sér starfshæfni, en það geta ekki allir gefið vinnu sína, eins og oft er krafist af lærlingum í skapandi greinum,“ segir í fréttatilkynningu frá leikhúsinu.
Það er Greta Clough á Hvammstanga sem stýrir brúðuleikhúsinu. Áhugasamir skulu senda erindi til til hennar á netfangið handbendi@gmail.com. Frekari upplýsingar er að finna vefsíðu og Facebook síðu Handbendis.