Handverkssalan gengur vel

Handverkssala sumarsins í Gallerí Alþýðulist hefur farið fram úr okkar björtustu vonum.

Að sögn afgreiðslustúlknanna fær verslunin mikið lof viðskiptavina fyrir framsetningu og handverkið þykir ekki af verri endanum. Við erum því afar ánægð að hafa ekki lagt upp laupana í Varmahlíð þó að upplýsingamiðstöðin hafi fært sig um set.

Nú þegar haustar höfum við ákveðið að stytta opnunartímann og verður fyrst um sinn opið frá 12 til 17. Við munum endurskoða þann tíma eftir því hversu mikil viðskiptin verða. Í vetur stefnum við á að hafa opið um helgar. Það er alveg ljóst að handverkið er tekjulind fyrir marga í félaginu því nokkrir hafa selt fyrir hundruð þúsunda í sumar. Við hvetjum alla Skagfirðinga sem eru með fallegt handverk til að koma því á framfæri hjá okkur því galleríið verður enn betra ef framboðið og fjölbreytnin eykst.

Helga Þórðardóttir, gjaldkeri.

Fleiri fréttir