Haraldur á Sjávarborg 90 ára

Haraldur Árnason á Sjávarborg varð níræður í dag, föstudaginn 6. mars 2015. Af því tilefni sóttu hann heim tveir félagar úr Rótarýklúbbi Sauðárkróks og færðu honum blómvönd frá klúbbnum með heillaóskum og þökkum fyrir langt og heilladrjúgt starf með Rótarýfélögum í meira en sex áratugi.

Brynjar Pálsson og Hjalti Pálsson færðu Haraldi blóm í tilefni dagsins. Myndirnar tók Hjalti. Brynjar Pálsson og Hjalti Pálsson færðu Haraldi blóm í tilefni dagsins. Myndirnar tók Hjalti.

Haraldur hefur ávallt verið áhugasamur Rótarýmaður og gerðist félagi árið 1954. Hann er eini núlifandi heiðursfélagi klúbbsins.

Fleiri fréttir