Háspenna lífshætta í Grindavík
Stólarnir sóttu Grindavík heim í gærkvöldi í Lengjubikarnum í körfunni og var boðið upp á háspennuleik því þegar upp var staðið hafði viðureignin verið tví framlengd en það voru heimamenn í Grindavík sem höfðu vinninginn á endanum, sigruðu 109-108.
Tindastóll byrjaði leikinn betur en fljótlega jafnaðist dæmið og staðan 23-22 fyrir heimamenn að loknum fyrsta leikhluta. Upp úr miðjum öðrum leikhluta náðu Grindvíkingar 8 stiga forystu en gestirnir hleyptu þeim ekkert lengra fram úr og staðan í hálfleik 50-45.
Grindvíkingar náðu aftur 8 stiga forystu upp úr miðjum þriðja leikhluta, 62-54, en Stólarnir voru ákveðnir og náðu 12-1 kafla fyrir lok þriðja leikhluta, staðan 63-66. Sagan endurtók sig í fjórða leikhluta, heimamenn náðu 10 stiga forystu þegar innan við fimm mínútur voru til leiksloka en þremur mínútum síðar var Helgi Rafn búinn að jafna leikinn og koma Stólunum yfir. Helgi átti stórleik í gær, gerði 38 stig og tók 11 fráköst. Ekki dugði þetta þó til því heimamenn komust yfir enn á ný en Antoine Proctor tryggði Stólunum framlengingu með því að setja niður tvö víti í blálokin.
Í framlengingunni var allt í járnum en Stólarnir þó skrefinu á undan. Proctor setti niður þrist þegar hálf mínúta var eftir en Christopher Stephenson svaraði í sömu mynt. Bæði Proctor og Stephenson fengu síðan tækifæri til að gera út um leikinn en skot þeirra geiguðu. Það þurfti því að framlengja öðru sinni og nú fóru menn að týnast út af með 5 villur. Grindvíkingar voru yfir lengstum í framlengingunni en Proctor fékk þrjú víti þegar örfáar sekúndur voru eftir, nýtti tvö þeirra og kom Stólunum yfir, 107-108. Sigurður G. Þorsteinsson fiskaði fimmtu villuna á Helga Rafn í framhaldinu og kappinn var ískaldur á vítalínunni, setti bæði skotin niður og tryggði Grindvíkingum sigur, 109-108.
Frábær leikur en með smá heppni og kannski skynsamari leik þá hefði sigurinn verið Stólanna. Auk Helga Rafns átti Proctor fínan leik með 30 stig, 10 stoðsendingar og 9 fráköst og Pétur Rúnar Birgisson var góður með 9 stig, 6 stoðsendingar, 5 stolna bolta og 5 fráköst. Þessi úrslit þýða að ef Tindastóll og Grindavík enda með jafn mörg stig þá eru innbyrðisúrslit hagstæð Stólunum.
Stig Tindastóls: Helgi Rafn 38, Proctor 30, Ingvi Rafn 13, Flake 9, Pétur 9, Helgi Freyr 6 og Sigurður Páll 3.