Hátíðarhöld á Sauðárkróki á sumardaginn fyrsta

Á sumardaginn fyrsta verður að vanda gengin skrúðganga á vegum Skátafélagsins Eilífsbúa og leggur hún af stað frá bóknámshúsi FNV kl. 10:30. Klukkan 11:00 hefst svo skátamessa í Sauðárkrókskirkju. Eftir hádegi, eða kl. 14-17 verður svo tónlist og kaffihús í Húsi frítímans á vegum Sjálfsbjargar í Skagafirði.

Veðurspáin er góð og því kærkomið að gera sér dagamun á þessum fyrsta degi sumars.

Það er svo tilvalið að enda daginn á vortónleikum Skagfirska kammerkórsins, en þeir verða í Miðgarði kl. 20:30 og bera tónleikarnir yfirskriftina Vorvindar-Vor sumar og rómantík á sumardaginn fyrsta.

Á efnisskránni eru vor og sumarlög en stjórnandi kórsins er Helga Rós Indriðadóttir.

 

Fleiri fréttir