Heiðursvörður við Sauðárkrókskirkju

Páll Ragnarsson. MYND AF MBL.IS
Páll Ragnarsson. MYND AF MBL.IS

Útför Páls Ragnarssonar, tannlæknis á Króknum og formanns Umf. Tindastóls í áratugi, fer fram frá Sauðárkrókskirkju á morgun, föstudaginn 19. febrúar kl. 14:00. Þeir eru ófáir sem vildu sýna þakklætisvott með því að fylgja Páli síðasta spölinn en fjöldatakmarkanir í miðjum heimsfaraldri gera fólki erfitt um vik. Félagar í Umf. Tindastóli hafa hvatt til þess að fólk, sem ekki kemst í kirkjuna, standi heiðursvörð að athöfn lokinni.

Lagt er til að fólk mæti um kl. 14:45 og standi heiðursvörð fyrir utan Sauðárkrókskirkju og upp Kirkjuklaufina. Er fólk hvatt til að mæta og kveðja einstakan Tindastólsfélaga.

Munum að hafa sóttvarnarreglur í hávegum, virða metrana tvo og grímunotkun.

Fleiri fréttir