Heilbrigðisráðherra tilbúinn til viðræðna við Svf. Skagafjörð um rekstur HS

Heilbrigðisráðuneytið hefur tilkynnt sveitarstjórn Svf. Skagafjarðar að það sé tilbúið til þess að hefja viðræður við sveitarfélagið um framtíð Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki og um möguleikann á yfirtöku sveitarfélagsins á rekstri stofnunarinnar með samningi við ríkið. Næstu skref, að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar formanns byggðarráðs, er að mynda starfshóp til þess að fara yfir málið og að setjast að samningaborðinu við ríkið.

„Þetta er það sem við erum búin að vera bíða eftir frá því fyrir jól, þegar við óskuðum eftir þessu bréflega við ráðuneytið, og erum búin að ítreka nokkrum sinnum. Þannig að það er afskaplega ánægjulegt að ráðuneytið sé tilbúið til viðræðu um þetta við okkur,“ sagði Stefán Vagn í samtali við Feyki.

Málið verður tekið fyrir á fundi byggðaráðs eftir viku en fyrir þann tíma munu aðilar í sveitarstjórn og fleiri tengdir funda og fara yfir málið. Stefán Vagn segir málið vera á byrjunarstigi en það er stórt og mikilvægt fyrir Skagfirðinga.

„Allir eru sammála um mikilvægi þessarar stofnunarinnar og mikilvægi þess að halda henni hérna heima. Sveitarstjórnin er búin að vera einhuga um að fara í þessar viðræður, og ítreka ég mikilvægi þess að vanda sig og að ná góðum samningi,“ segir Stefán Vagn að lokum.

 

Fleiri fréttir