Heilsað upp á Kollsvein
Menningarminjadagur Evrópu hér á landi verður haldinn fimmtudaginn 8. september nk. og verður þema dagsins að þessu sinni menningarlandslag. Í tilefni dagsins mun Þór Hjaltalín minjavörður Norðurlands vestra kynna landnám Kollsveins hins ramma í Skagafirði.
Farið verður að rústum landnámsbýlisins Kollsveinsstaða og þaðan að Hofstöðum og að meintum minjum af hofi Kollsveins. Lagt verður af stað frá Dýrfinnustöðum í Akrahreppi fimmtudaginn 8. sept. kl. 8.15 (að morgni). Þaðan er ekinn jeppaslóði ca. 1.5 km, að rústasvæðinu.
Tilgangur menningarminjadagsins er að vekja athygli almennings á gildi menningararfsins og skapa vettvang til þess að almenningur geti kynnst sögulegu umhverfi sínu. Dagskrá menningarminjadagsins má finna í heild á heimasíðu Fornleifaverndar ríkisins, www.fornleifavernd.is
Samkvæmt Wikipedia var Kollsveinn rammi landnámsmaður í Skagafirði. Hann nam land á milli Gljúfurár í Viðvíkursveit og Þverár í Blönduhlíð. Landnámsjörð hans nefndist Kollsveinsstaðir samkvæmt Landnámabók en sá bær er ekki lengur til og óvíst hvar hann var. Landnáma segir að hann hafi haft blót á Hofsstöðum.