Heimaleikur gegn Þór Þorlákshöfn í bikarnum
Fyrr í dag var dregið í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins en þar voru auk Tindastóls: Snæfell, Fjölnir, Keflavík, KR, Grindavík, Njarðvík, Hamar, Stjarnan, KFÍ, Breiðablik, Þór Akureyri, Njarðvík-b, Höttur, Skallagrímur og Þór Þorlákshöfn sem er einmitt liðið sem dróst á móti Stólunum og verður leikið hér heima í upphafi nýs árs.
Á Tindastólsvefnum segir að Þórsarar hafi komið skemmtilega á óvart í deildinni í vetur og séu með hörkulið en það sé einnig klárt mál að strákarnir í Tindastóli gefa ekkert eftir á heimavelli.
Næsti leikur Tindastóls í Iceland Express deildinni verður gegn Þór, og fer hann fram í Þorlákshöfn og gefst þá liðunum ágætt tækifæri til að máta sig saman fyrir bikarleikinn.