Heimaleikur hjá stelpunum, útileikur hjá strákunum
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
07.02.2014
kl. 12.22
Meistaraflokkur kvenna tekur á móti Grindavík á morgun. Vegna þorrablóts á Króknum fer leikurinn fram í íþróttahúsinu í Varmahlíð og hefst hann kl 14. Það hefur verið mikið flug á stelpunum í vetur og vænta má að þær gefi ekkert eftir í þessum leik. Strákarnir fara svo suður yfir heiðar og mæta Fjölni í Grafavoginum í kvöld og hefst sá leikur kl 19:15.
Þessa má geta að viðtal við Tashawna Higgins, þjálfara og leikmann í meistaraflokki kvenna, verður í Feyki í næstu viku. Þar ræðir hún m.a. um dvöl sína á á Íslandi og gengi liðsins á tímabilinu.