Heimild til að nytja Drangey til þriggja ára
feykir.is
Skagafjörður
04.04.2014
kl. 11.49
Byggðarráð Svf. Skagafjarðar samþykkti á fundi sínum í gær að heimila Drangeyjarfélaginu að nytja Drangey til þriggja ára. Fram kemur í fundargerð að félagið mun kappkosta að viðhalda veiðiaðferðum, veiðistöðum og ganga um eyna í fullri sátt við náttúruna eins og gert hefur verið undanfarna áratugi.
„Félagsmenn hafa haldið við skála í Drangey og unnið betrumbætur við lendingu og uppgöngu í eyna á kostnað félagsins. Ef nytjaleyfi fæst, þá stefnir félagið á að setja upp flotbryggju í sumar við eyna á eigin kostnað,“ segir í fundargerðinni.
Byggðaráð samþykkti beiðnina sem fyrr segir, „enda verði almennt og eðlilegt aðgengi í eyjuna tryggt á samningstímanum.“