Heimir í Hofi

Næstkomandi sunnudag heldur Karlakórinn Heimir tónleika í Hofi á Akureyri. Tónleikarnir verða með svipuðu sniði og Þrettándagleðin í Miðgarði og eins og þá mun Garðar Thor Cortes syngja með kórnum að loknu hléi. Einnig syngur Ari Jóhann Sigurðsson einsöng með kórnum.

Efnisskráin verður fjölbreytt og skemmtileg, fluttar verða óperuaríur og sígild kórverk bæði íslensk og erlend. Stjórnandi er Stefán R. Gíslason og undirleikari Thomas Higgerson.

Nánar verður fjallað um dagskrá Heimis fram á vorið í Feyki í næstu viku.

Fleiri fréttir