Heita vatnslaust á Hólavegi
feykir.is
Skagafjörður
03.03.2014
kl. 14.23
Við Hólaveg 9 á Sauðárkróki er bilun í heitavatnslögn sem gerir það að verkum, að loka þarf fyrir heita vatnið meðan gert er við. Heita vatnslaust er frá Hólavegi 11 og út að Hólavegi 2, samkvæmt fréttatilkynningu frá Skagafjarðarveitum. Einnig detta út Ægisstígur og Ránarstígur og Sæmundargata að hluta.
„Vonast er til að viðgerð verði lokið síðdegis í dag. Beðist er velvirðingar á þessum óþægindum,“ segir loks í tilkynningu.