Helga Margrét getur enn náð Ólympíulágmarkinu

Helga Margrét Þorsteinsdóttir á enn möguleika á að ná Ólympíulágmarkinu í sjöþraut eftir fyrri keppnisdaginn á franska meistaramótinu í fjölþraut. Hún fékk eftirfarandi úrslit í greinunum fjórum í dag.

Helga Margrét hljóp 100 m grindahlaup á 14,77 sekúndum og stökk 1,65 m í hástökki. Hún bætti besta árangur sinn í kúluvarpi þegar hún kastaði 14,36 m og hljóp 200 m hlaup á 25,60 sekúndum, sem er hennar besti tími í greininni í tvö ár. Við lok dags er hún með 3.318 stig.

Vésteinn Hafsteinsson, umboðsmaður hennar og ráðgjafi, segir að hún þurfi að bæta sig í tveimur greinum til að eiga möguleika á að komast til Lundúna.

„Til að ná Ólympíulágmarki á morgun 5.950 stig þarf hún að stökkva 5.85 m í langstökki, kasta 51 m í spjótkasti og hlaupa 800 m á 2.11,“ segir Vésteinn.

 

Fleiri fréttir