Helga Margrét keppir í Hollandi um næstu helgi
Helga Margrét Þorsteinsdóttir Ármanni hefur undirbúið sig af kappi fyrir aðra fimmtarþraut sem hún fer í í Hollandi um næstu helgi. Helga hefur tekið þátt í tveimur mótum í vikunni.
Á miðvikudag keppti hún í Kaupmannahöfn og varpaði kúlunni 14.04m. Síðan í gær keppti Helga í Växjö og stökk 1.73m í hástökki, 5.56m í langstökki og varpaði kúlunni 14.60m. Þetta er svona á svipuðu róli og um daginn í fimmtarþrautinni í Tallinn þegar hún setti Íslandsmetið 4.298 stig.
Helga hefur mikla möguleika á að bæta metið um helgina en það fer mjög líklega eftir því hvort að henni tekst að hlaupa hraðar í grindahlaupinu og stökkva lengra í langstökkinu þar sem kúluvarpið, hástökkið og 800m hlaupið hefur verið gott að undanförnu.
Í augnablikinu er Helga í 16. sæti heimslistans en getur komist á topp 10 ef henni tekst vel upp um helgina. Sjá nánar hér.
/Fréttatilkynning