Helga Margrét sigrar á móti í Hollandi
Helga Margrét Þorsteinsdóttir sjöþrautarkona úr Ármanni keppti í Fimmtarþraut á alþjóðlegu móti í Apeldoorn í Hollandi í gær og hlaut 4.292 stig. Það eru sex stigum færri en Íslandsmet hennar, 4.298 stig, sem hún setti fyrir þremur vikum í Tallinn í Eistlandi.
Helga vann greinina með 4.292 stigum en á eftir henni komu Yvonne van Langen-Wisse frá Hollandi með 4.188 stig og Ida Marcussen frá Noregi með 4.182 stig.
Heildarárangur Helgu Margrétar í fimmtarþrautinni var sem hér segir:
60 m grindahlaup – 8,97sek
Hástökk – 1,78m
Kúluvarp – 14,41m
Langstökk – 5,47m
800 m hlaup - 2:13,72 mín.
„Hægt er að segja að Helga missti af metinu í langstökkinu en gerði annars fína hluti í hástökkinu, kúluvarpinu og 800m. Grindahlaupið er alls ekki nógu gott og langstökkið er því miður langt undir getu. Þetta kemur allt með tímanum og Helga er reynslunni ríkari eftir þessar tvær þrautir sem eru báðar betri en hennar besti árangur fyrir þetta tímabil,“ segir Vésteinn Hafsteinsson í fréttatilkynningu.
Hér má skoða nánari upplýsingar um úrslit á mótinu.