Helga Rakel og Ingimundur sigurvegarar
Hið árlega púttmót Flemming open, hið þriðja í röðinni, var haldið á púttvellinum á Hvammstanga föstudagskvöldið 21. júní. Mótshaldari og gefandi verðlauna er Flemming Jessen fyrrverandi skólastjóri á Hvammstanga. Alls voru tuttugu og þrír þátttakendur skráðir til leiks og léku þeir þjá hringi eða tuttugu og sjö holur, en par vallarins er 21. Úrslit urðu sem hér segir:
Kvennaflokkur:
1. Helga Rakel Arnardóttir, Hvammstanga 75 högg
2. Margrét Guðmundsdóttir, Hvammstanga 76 högg
3. Ragnheiður Jónsdóttir, Borgarnesi 77 högg
Karlaflokkur:
1. Ingimundur Ingimundarson, Borgarnesi 63 högg á pari
2. Páll Sigurðsson, Hvammstanga 65 högg
3. Þórhallur Teitsson, Hvanneyri 67 högg
Púttvöllurinn á Hvammstanga er á lóð heilsugæslustöðvarinnar og er á vegum Húnaþings vestra og heilbrigðisstofnunarinnar. Hann er til frjálsra afnota fyrir almenning án endurgjalds.
/ Guðmundur Haukur