Helgistund í Grafarkirkju á Höfðaströnd

Hin árlega helgistund í Grafarkirkju á Höfðaströnd verður haldin að kvöldi næstkomandi sunnudags, þann 28. júlí, kl. 20. Grafarkirkja, sem stendur í mynni Deildardals, er á meðal elstu guðshúsa landsins og eitt fágætasta hús sem varðveist hefur.

Helgistund í Grafarkirkju er árviss viðburður í Hofsóss- og Hólaprestakalli þar sem komið er saman til kyrrlátrar stundar undir skini kvöldsólarinnar og notið einstæðrar helgi og friðar. Sr. Gunnar Jóhannesson leiðir stundina og flytur hugleiðingu. Kirkjukór Hofsóss syngur fallega kvöldsálma undir stjórn Önnu Kristínar Jónsdóttur.

Að venju bíður kirkjufólks kaffisopi og meðlæti í garðinum við kirkjuna að helgistundinni lokinni. Njótum saman helgrar stundar á kyrrlátu kvöldi.

Í tilkynningu frá sóknarpresti, sóknarnefnd og kirkjukór eru allir boðnir hjartanlega velkomnir.

 

Fleiri fréttir