Hestadagar grunnskólanemenda á Hólum

Hestafræðinámi 9. bekkinga í Varmahlíðarskóla og 8. og 9. bekkjar Árskóla sem fram fer á Hestadögum Háskólans á Hólum lauk nýlega með fjögurra daga dvöl nemendanna á Hólum í Hjaltadal.

Hestadagarnir eru liður í æfingakennslu 1. árs nemenda við Hestafæðideild Háskólans á Hólum þar sem þau fá tækifæri til að æfa sig í að kenna byrjendum eða aðeins vönum nemendum hestamennsku. Kennd eru bókleg og verkleg atriði sem tengjast hestum, hestahaldi og því að vera góður hestamaður.

„Þetta er sem sagt liður í námskeiðinu Kennslufræði 2 sem nemendur á 1. ári í hestadeildinni við Háskólann á Hólum eru að taka. Þau eru búin að læra kennslu- og reiðkennslufræði 1 fyrir áramót og á vorönn er reiðkennslufræði 2,“ sagði Elisabeth Jansen, sem hefur umsjón með námskeiðinu, í samtali við Feyki í síðustu viku.

„Þá eru þau að æfa sig allan veturinn að kenna hvert öðru en svo er boðið upp á námskeið í fjóra daga heima á Hólum fyrir skólakrakkana. Grunnskólinn austan Vatna var með í „gamla“ daga en það hefur ekki tekist síðustu árin þar sem þau eru oftast í árshátíðarundirbúningi á þessum tíma,“ sagði Elisabeth ennfremur. Hún segir að í ár hafi verið metskráning og voru 48 nemendur skráðir í upphafi, en hingað til hafa þeir verið um 30-35 á ári. Vegna forfalla voru um 40 börn sem mættu hvern dag á námskeiðið.

„Kennaraefnin við Hólaskóla voru 22, fleiri en verið hafa undanfarin ár, svo þetta gekk allt saman mjög vel og hafa þau mjög gaman af því að vinna með þessum áhugasömu nemendum úr 8. og 9. bekk. Þau kenna alls konar hluti tengda hestamennskunni hér og er það bæði bókleg kennsla og verkefnavinna, ásamt verklegum reiðtímum í reiðhöllum Hólaskóla. Við erum mjög ánægð með þetta samstarf og lítum björtum augum á framtíðina hvað varðar hestamennsku í Skagafirði,“ sagði Elisabeth að lokum.

Fleiri myndir frá þessu skemmtilega verkefni má finna á heimasíðu Varmahlíðarskóla.

 

 

Fleiri fréttir