Hestaflutningamaður komst í hann krappan

Skagfirðingurinn Jakob Einarsson, eða Kobbi frá Dúki eins og hann er oft kallaður, komst í hann krappan í fyrradag er hestaflutningabíll sem hann ók fauk út af þjóðveginum í Jökuldal. Jakob þurfti að hírast kaldur og blautur í bílnum þar til hjálp barst. Fjórir hestar voru á bílnum en þá sakaði ekki. Hestafréttir greina frá þessu.

Óveður hefur gengið yfir landið síðustu daga og víða hefur verið fljúgandi hálka og mikið rok. Samkvæmt vef Hestafrétta var Jakob var á leiðinni með hesta úr Skagafirði til Austfjarða og fór útaf í Jökuldal sem fyrr segir. Illa gekk að koma honum á veginn aftur þrátt fyrir að keðjur voru undir bílnum en það dugði ekki til í glærahálku og ofsaveðri.

Það var síðan með hjálp veghefils sem tókst að draga flutningabílinn upp á veginn aftur. Jakob kom bílnum með hestunum fyrir í skjóli og beið meðan illviðrið gekk yfir.

Fleiri fréttir