Hestamenn safna fyrir eldhústækjum
Fjáröflunarnefnd Léttfeta hyggst seðja svanga maga nú í nóvember til að fjármagna ný eldhústæki í félagsheimili þeirra, Tjarnabæ, og verður byrjað nk. föstudag á bleikjuþema.
Þá verður boðið upp á nokkra bleikjurétti, kaffi og súkkulaði á eftir og verður opið frá klukkan 18:00 – 19:30. Á meðan borðhaldi stendur munu myndir úr ferðum félagsmanna verða sýndar á myndvarpa.
Föstudaginn 11. nóv. kl 18-19:30 verður boðið upp á nokkrar útfærslur á hrossakjöti, , kaffi og rússur á eftir.
Sunnudaginn 20. nóv. kl 14.00 verður haldið kökubingó sem efalaust á eftir að koma sér vel hjá einhverjum fyrir jólin.
Að lokum verður haldið smárétta kvöld, með léttu ívafi, sunnudaginn27. nóvember.
Verð: 12 ára og yngri kr. 1000-, 13 ára og eldri kr. 2000-.