Hestamenn þakklátir
Á fundi byggðaráðs Skagafjarðar sl. fimmtudag var lagt fram bréf frá Landssambandi hestamannafélaga, þar sem fram kemur sérstakt þakklæti til sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir ómetanlegan stuðning við undirbúning landsmótsins á Vindheimamelum dagana 26. júní - 3. júlí 2011
Segja má að sökum aðstæðna hafi stuðningur sveitarfélagsins orðið meiri en venja er og fyirr það eru hestamenn þakklátir enda tókst að halda glæsilegt mót þrátt fyrir mótbyr.