Heyskap að ljúka í Fljótum
Í Fljótum eru menn að ljúka heyskap um þessar mundir, en nokkrir eiga eftir einhvern seinni slátt, hafa verið að bíða eftir betri sprettu. Segja má að furðanlega hafi ræst úr með heyfeng miðað við útlit framanaf sumri.
Heyfengur er þó víða ívið minni en venjulega hinsvegar hafa menn bjargað sér með því að slá tún eyðijörðum jafnvel tún sem ekki hafa verið heyjuð í nokkur ár. Svo virðist sem meira hafi rignt í Fljótum en í öðrum sveitum í héraðinu um heyskapartímann og það bjargaði því að spretta var víðast hvar orðin ágæt í lok júlí og einnig að tún brunnu ekki af sól og þurrki. ÖÞ: