Higgins mun þjálfa mfl. kvenna í vetur
Körfuknattleiksdeild Tindastóls var búin að semja við þjálfarann Tane Spasev að koma til landsins og þjálfa meistaraflokk kvenna á komandi leiktíð. Fyrir rúmum tveimur vikum kom þó upp sú staða að Spasev gat ekki séð sér fært um að þjálfa liðið vegna persónulegra ástæðna.
Nú hefur körfuknattleiksdeildin komist að samkomulagi við Tashawana Higgins um að þjálfa liðið og leika með því. Higgins er reyndur leikmaður og spilar fyrir landslið Jamaica. Stjórn köruknattleiksdeildarinnar hefur mikla trú um að Higgins muni styrkja hópinn fyrir komandi vetur. Einnig hefur stjórnin samið við Kára Marísson um að vera aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla, en Kára þarf vart að kynna og er hann fullur af eldmóði fyrir komandi átök. Stjórnin biður Kára velkominn til starfa. /Fréttatilkynning
Hér er hægt að sjá Tashawana Higgins