Hjördís Ósk Hraustasta kona Íslands

Hjördís Ósk Óskarsdóttir frá Hvammstanga hlaut um síðustu helgi titilinn Hraustasta kona Íslands er fjórða og síðasta mót EAS Þrekmótaraðarinnar, Lífstílsmeistarinn, fór fram í Reykjanesbæ. Hjördís Ósk vann kvennaflokkinn í einstaklingskeppninni og mun þetta vera í annað sinn sem hún hlýtur þennan eftirsótta titil.

Á Norðanátt.is segir að fleiri húnvetnskar valkyrjur hafi tekið þátt, þær Hafdís Ýr systir Hjördísar og Helga Margrét Þorsteinsdóttir frjálsíþróttakona.

„Það var hörku keppni milli Hjördísar og Ragnheiðar Söru Sigmundsdóttur, en Hjördís fór í gegnum brautina í Lífstílsmeistaranum á tímanum 19:29 og Ragnheiður Sara á tímanum 19:54. Heildarstigakeppni EAS Þrekmótaraðarinnar vann Hjördís með einu stigi,“ segir á Norðanáttinni.

Hjördís Ósk var í aðalviðtali í 37. tbl. Feykis en þá var hún nýkrýndur sigurvegari Fit as Fu*k 2012 í crossfit í Danmörku.

Fleiri fréttir