Hjördís Ósk í 20. sæti á Evrópuleikunum

Crossfit-konan frá Hvammstanga, Hjördís Ósk Óskarsdóttir, fór um síðustu helgi ásamt fríðu föruneyti til Danmerkur að keppa á Evrópuleikunum í Crossfit. Hafnaði hún í 2. sæti á mótinu.

Leikarnir fóru fram í Ballerup og keppti Hjördís í einstaklingskeppni kvenna. Heildarárangur Hjördísar á leikunum var 20. sæti, en alls kepptu 40 konur í einstaklingskeppninni. Efstu þrjú sætin í einstaklingskeppninni tryggðu sér þátttökurétt á Heimsleikunum í Crossfit, sem fara fram í Bandaríkjunum síðar á þessu ári.

Hjördís fékk góðan stuðning á leikunum frá ferðafélögum sínum, þeim Aroni S. Ólafssyni, Hafdísi Ýr Óskarsdóttur og Sveinbjörgu Rut Pétursdóttur. Heildarúrslit má nálgast á vefnum games.crossfit.com.

Fleiri fréttir