Hjördís Stefánsdóttir sett forstjóri Persónuverndar til eins árs
feykir.is
Skagafjörður
01.04.2014
kl. 11.14
Hjördís Stefánsdóttir, frá Sauðárkróki og lögfræðingur í innanríkisráðuneytinu, hefur tímabundið verið sett forstjóri Persónuverndar. Gildir setning hennar frá 1. apríl 2014 til 31. mars 2015.
Samkvæmt vefsíðunni Stjórnarráð.is hefur Sigrún Jóhannesdóttir, skipaður forstjóri Persónuverndar, verið í leyfi frá störfum sínum síðustu misseri og óskaði hún eftir framlengdu leyfi. Innanríkisráðherra hefur orðið við ósk forstjórans um framlengt leyfi og sett Hjördísi Stefánsdóttur forstjóra í leyfi Sigrúnar.
Þess má geta að Hjördís var matgæðingur Feykis í vikunni sem leið.