Hlaupið í hríðinni - myndasyrpa

Fjölmargir mættu í áramótahlaup sem haldið var í norðannæðingi upp úr hádegi í dag á Sauðárkróki. Hlaupið var frá íþróttahúsinu og sem leið lá niður Hegrabraut og niður Strandveg. Hlupu sumir niður að hesthúsahverfi og til baka en aðrir tóku Vegagerðarhringinn svokallaða en þá er hlaupið meðfram þjóðveginum sunnan Sauðárkróks og inn í bæinn við Skagfirðingabraut.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá hlaupi dagsins.

.

Fleiri fréttir