Höfðaskóli og Varmahlíðarskóli fá styrki úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar
Úthlutað hefur verið úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar fyrir árið 2017 en markmið sjóðsins eru að stuðla að aukinni fræðslu og áhuga meðal barna og unglinga á forritun og tækni, koma forritunarnámskeiðum að í grunn- og framhaldsskólum, að tækjavæða skólana og að auka þjálfun og endurmenntun kennara.
Alls bárust 32 umsóknir til sjóðsins fyrir þessa úthlutun og voru Varmahlíðarskóli og Höfðaskóli meðal þeirra ellefu skóla sem hlutu styrk að þessu sinni. Styrkirnir eru í formi tölvubúnaðar og fjárstyrks til þjálfunar kennara til að búa þá betur undir forritunarkennslu fyrir nemendur, samtals um sex og hálf milljón króna.
Frá því að sjóðurinn var stofnaður árið 2014 hefur hann úthlutað styrkjum sem nema hátt í 40 milljónum króna til skóla landsins og áður hafa þrír skólar á Norðurlandi vestra hlotið styrk úr sjóðnum, Árskóli og Grunnskólinn austan Vatna árið 2015 og Blönduskóli árið 2016. Sjóðurinn er samfélagsverkefni sem hefur það hlutverk að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Hollvinir sjóðsins eru Reiknistofa bankanna, Íslandsbanki, Landsbankinn, CCP, Icelandair, Össur, Cyan, KOM, Marel og Advania en tvö þau síðastnefndu bættust við á síðasta ári.
„Það blandast engum hugur um mikilvægi tækni- og forritunarþekkingar í samfélagi nútímans. Við hjá sjóðnum erum afar stolt af því að geta stutt við skóla landsins í þessum efnum og þar með eflt þá í að leggja þann grunn sem þarf til að byggja á til framtíðar. Við finnum það að starfið skiptir skólana máli og fyrir auknum áhuga á forritunarkennslu í skólunum. Þjóðir sem best standa hvað tækni varðar búa við ákveðið forskot. Forritun eða innsýn í forritun er nokkuð sem nýtist ungmennum til framtíðar, ekki ósvipað og fólk býr að því að hafa fengið kennslu í erlendum tungumálum, landafræði og öðrum námsgreinum,“ segir Sigfríður Sigurðardóttir, formaður stjórnar Forritara framtíðarinnar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.