Hofsós ekki með í "Brothættar byggðir"
Nýverið samþykkti stjórn Byggðastofnunar á fundi sínum að taka þrjú byggðarlög inn í verkefnið um framtíð brothættra byggða. Þau byggðarlög eru annars vegar Kópasker og nágrenni, sem tilheyrir Norðurþingi og hins vegar eyjarnar Grímsey og Hrísey, sem tilheyra Akureyrarkaupstað. Sveitarfélagið Skagafjörður sótti um vegna Hofsós, sem ekki varð fyrir valinu að þessu sinni.
Vorið 2014 var auglýst eftir umsóknum um þátttöku í verkefninu. Alls bárust umsóknir frá níu sveitarfélögum fyrir tólf svæði. Fyrir eru í verkefninu byggðarlögin Raufarhöfn, Breiðdalshreppur, Skaftárhreppur og Bíldudalur.Í frétt á vef Byggðastofnunar segir að afgreiðsla umsókna hafi tekið lengri tíma en æskilegt hefði verið, sem skýrist einkum af endurskoðun á verklagi og úttekt á verkefninu í heild, enda um þróunarverkefni að ræða.
Kristján Þ. Halldórsson hjá Byggðastofnun sagði í samtali við Feyki í síðustu viku að í millitíðinni hefði verið unnið að þróun verkefnisins. „Varð niðurstaðan sú að það væri óráðlegt að fara inn á mjög marga staði í viðbót því þá yrðu ekki kraftar né fjármunir til að sinna verkefninu sem skyldi á hverjum stað. Það var því ljóst að þyrfti að forgangsraða og takmarka þátttöku. Niðurstaðan varð sú að Hofsós komst ekki inn í þessari lotu,“ sagði Kristján.
Áður nefnd byggðarlög voru valin á grundvelli þess að staða þeirra þykir hvað veikust af umsóknarbyggðarlögum ef tekið er mið af lýðfræðilegum þáttum, atvinnusóknarsvæðum og stöðu í atvinnulífi meðal annars. „Það er m.a. horft á fjölda íbúa, fækkun, aldursdreifingu, staðsetningu og fjarlægð frá suðvesturhorninu, þróun fasteignamarkaðar og fleira,“ segir Kristján.
Þar sem verkefnið getur staðið nokkur ár í hverju tilviki er ólíklegt að unnt verði að ganga til samstarfs í fleiri byggðarlögum á árunum 2015-2016. Kristján segir að staðan verði endurmetin á næsta ári, með tilliti til þess hvort fjármagn og staða leyfir að verkefnum verði bætt við.