Hólanemar styrkja björgunarsveit
Bræðurnir Ingvar Daði og Ævar Jóhannssynir úr björgunarsveitinni Gretti í Hofsósi tóku í dag á móti styrk frá ferðamálanemendum við Háskólann á Hólum. Háskólanemarnir höfðu staðið fyrir kaffihlaðborði á Hólum á dögunum og er styrkurinn afrakstur þeirrar kaffisölu.
Um var að ræða hagnýtt verkefni í námskeiðinu Matur og menning, þar sem nemendum var ætlað að skipuleggja, undirbúa og standa fyrir matartengdum viðburði. Þetta gerðu nemendurnir með miklum ágætum og komu um 100 manns í kaffi á Hólum þann daginn.
Þema hlaðborðsins var hefðbundið íslenskt kaffihlaðborð þar sem borð svignuðu undan hnallþórum, pönnukökum, hangikjöti með flatbrauði, skonsutertum og fleira góðgæti. Það voru saddir og sælir gestir sem stóðu upp frá borðum og var mál manna að vel hefði til tekist. Styrkurinn mun vonandi nýtast björgunarsveitinni vel í því ágæta starfi sem þar fer fram.
Eftirtaldir lögðu verkefninu lið og hljóta bestu þakkir fyrir: Sauðárkróksbakarí, Landsbanki Íslands á Sauðárkróki, Kaupfélag Skagfirðinga, Hlíðarkaup, Kvenfélag Staðarhrepps, Norðlenska á Akureyri og Kornax. Einnig er Herdísi í Áskaffi þakkað fyrir veittan stuðning og lán á búningum.