Stólastúlkur fá Ármann í heimsókn í kvöld
Að afloknu landsleikjahléi þar sem íslenska kvennalandsliðið fór á kostum þá hefjast leikar í Bónus deild kvenna í kvöld. Það er lið Ármanns sem rúllar norður í hitabylgjuna – já, fimm gráður er ansi gott á þessum árstíma – en liðin hefja leik í Síkinu kl. 19:15.
Banhungraðir körfuboltafíklar geta slengt í sig hamborgurum beint af grillinu og svo vera komin ný sending af svörtum Tindastólstreyjum í Stólabúðina. Svona ef einhvern vantar eitthvað til að vera í eða bara jólagjöf.
Allir í Síkið og áfram Tindastóll!
