Hólaskóli tekur þátt í háskólakynningum
feykir.is
Skagafjörður
04.03.2014
kl. 09.28
Háskóladagurinn 2014 var haldinn í Reykjavík síðastliðinn laugardag. Að þessu sinni kynntu allir opinberu háskólarnir á landsbyggðinni námsframboð sitt á sama stað, Háskólatorgi Háskóla Íslands. Sagt er frá þessu á vef Hólaskóla.
Að sögn kynningarstjóra Hólaskóla, Guðmundar Björns Eyþórssonar, tókst dagurinn vel og var mikið sótt í bás Hólamanna. Næstu háskólakynningar sem Hólaskóli tekur þátt í verða á Egilsstöðum 19. mars og á Akureyri 20. mars.