Hollvinasamtök gefa sótthreinsunartæki
Nýlega færðu Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Hvammstanga hjúkrunar- og sjúkradeild HVE á Hvammstanga sótthreinsunartæki (bekkenskolpott) til notkunar á deildinni. Um er að ræða tæki af nýjustu gerð keypt hjá Fastus ehf og leysir það af hólmi rúmlega 20 ára gamalt tæki sem var komið af fótum fram. Verðmæti tækisins er rúmar 900 þúsund krónur. Formaður Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar á Hvammstanga er Guðrún Elín Benónýsdóttir. Á heimasíðu Hve þakkar framkvæmdastjórn hollvinasamtökunum fyrir höfðinglega gjöf sem sannarlega kemur að góðum notum.