Hólmfríður leggur svuntunni

Eftir 50 farsæl ár í fiskvinnslu hefur Hólmfríður Runólfsdóttir ákveðið að taka niður svuntuna.
Í frétt frá Fisk seafood segir: „Hún hóf störf hjá Skildi á Sauðárkróki árið 1975, en frá og með 1993 hefur hún starfað fyrir FISK Seafood. Í tilefni að þessum tímamótum var boðið upp á köku og kaffi í matsal landvinnslunnar á Sauðárkróki þar sem henni var færður þakklætisvottur fyrir sitt framlag fyrir fyrirtækið. Viljum við koma á framfæri þökkum frá stjórn og samstarfsfólki FISK fyrir farsæl og góð störf og við óskum henni velfarnaðar í þeim verkefnum sem hún tekur sér fyrir hendur.“