Holur í malbiki

Vakin er athygli á því á vef Skagafjarðar að vegna tíðarfars undanfarnar vikur hafa myndast holur á götum sveitarfélagsins. Ökumenn eru því beðnir um að sýna varkárni á næstu dögum.

Starfsfólk þjónustumiðstöðvarinnar mun fara í viðgerðir þegar veðrið tekur að lægja.

Íbúar eru hvattir til þess að tilkynna um staðsetningu hola með því að senda ábendingu í gegnum ábendingagátt eða með því að senda póst á skagafjordur@skagafjordur.is.

Fleiri fréttir