Hörður tekur sæti á Alþingi í fyrsta sinn

Hörður Ríkharðsson, varaþingmaður Samfylkingarinnar.
Hörður Ríkharðsson, varaþingmaður Samfylkingarinnar.

Blönduósingurinn Hörður Ríkharðsson tók í fyrsta sinn sæti á Alþingi í síðustu viku í forföllum Guðbjarts Hannessonar, þingmanns Samfylkingarinnar.

Í frétt Mbl.is segir að Guðbjartur hafi ekki tekið sæti sitt á Alþingi þegar þing kom saman í byrjun mánaðarins vegna veikinda. Ólína Þorvarðardóttir tók sæti hans fyrst í stað en Einar Guðfinnsson, forseti Alþingis, tilkynnti svo að hún gæti ekki sinnt störfum á þingi á næstunni og því tæki Hörður sætið.

Hörður er annar varaþingmaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi og starfar sem kennari við Blönduskóla. Hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og undirritaði því drengskaparheit að stjórnarskránni.

Fleiri fréttir