Hraðbanki í Hofsós kominn í gagnið
feykir.is
Skagafjörður
20.12.2013
kl. 15.43
Nýr hraðbanki frá Arionbanka var tekinn í gagnið í Hofsósi í dag. Er hann staðsettur í Kaupfélaginu á staðnum og aðgengilegur á opnunartíma þess. Í hraðbankanum er hægt að taka út, millifæra, greiða inn á símakort og greiða allar kröfur sem birtast í heimabanka.
Að sögn Jóels Kristjánssonar, útibússtjóra Arionbanka á Sauðárkróki, verða nánari leiðbeiningar um notkun bankans veittar innan tíðar.