Hraðinn tekinn niður í 30km
Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar Svf. Skagafjarðar fyrir skömmu voru lögð fram til kynningar drög að hraðatakmörkunum fyrir Sauðárkrók. Drögin gera ráð fyrir 30km hámarkshraða innanbæjar að frátöldu iðnaðarhverfi og nokkrum nafngreindum götum.
Þær eru:
Sunnanverð Skagfirðingabraut að Sauðá, Borgargerði, Sæmundarhlíð að sjúkrahúsi, Sauðárhlíð, Strandvegur og Eyrarvegur. Nefndin leggur til að hraðatakmarkanir verði endurskoðar á Hegrabraut, Sæmundarhlíð og Skagfirðingabraut að sundlaug verði 50km.
Þá er lagt til að skoðaðar verði tímabundnar hraðatakmarkanir í gegnum skólahverfi um Sæmundarhlíð og Skagfirðingabraut.