Hrefna Gerður er nýr mannauðsstjóri Svf. Skagafjarðar
Hrefna Gerður Björnsdóttir hefur verið ráðin í stöðu mannauðstjóra hjá Sveitarfélaginu Skagafirði og mun hún hefja störf upp úr næstu mánaðamótum. Alls sóttu 33 um starfið og þar af drógu sjö umsókn sína til baka.
Samkvæmt heimasíðu Svf. Skagafjarðar lauk Hrefna Gerður BA prófi í lögfræði árið 2007 og meistaraprófi í lögfræði árið 2010. Lokaritgerð hennar til ML prófs fjallaði um áminningar starfsmanna ríkisins, skv. 21.gr. laga nr. 70/1996. Hún hefur einnig lokið fjölmörgum námskeiðum hjá Félagsmálaskóla Alþýðu og frá Fræðslusetri Starfsmenntar m.a. samningar sveitarfélaga og SGS.
Hún hefur starfað sem sérfræðingur hjá Öldunni – stéttarfélagi frá mars 2010 við lögfræðileg málefni tengd vinnurétti, túlkun kjarasamninga, undirbúning kjarasamninga og sérkjarasamninga Öldunnar. Hún er varaformaður ASÍ-ung, eftirlitsfulltrúi ASÍ og hefur gengt fjölmörgum öðrum trúnaðarstöfum fyrir ASÍ.
Mannauðsstjóri starfar á stjórnsýslu- og fjármálasviði. Starfið felur m.a. í sér ráðgjöf og eftirfylgni með mannauðsmálum Sveitarfélagsins Skagafjarðar.