Hreinsunarátak í þéttbýli í Skagafirði

Sveitarfélagið Skagafjörður efnir til hreinsunarátaks í þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins um næstu helgi. Íbúar Sauðárkróks, Varmahlíðar, Hofsóss, Hóla og Steinsstaða eru hvattir til að taka þátt, segir í tilkynningu frá sveitarfélaginu.

Takmarkið er fegurra umhverfi og því skiptir miklu máli að íbúar taki höndum saman og tíni rusl og snyrti í kringum lóðir sínar og á nærliggjandi opnum svæðum. Hægt verður að nálgast ruslapoka á eftirtöldum stöðum frá föstudagsmorgni 7. júní:

Sauðárkrókur: Flokka

Varmahlíð: Kaupfélag Skagfirðinga

Hofsós: Kaupfélag Skagfirðinga

Hólar: Ferðaþjónustan á Hólum (í móttökunni)

Steinsstaðir: Garðyrkjustöðin á Laugamýri

Mánudaginn 10. júní verður ruslapokunum safnað saman og er mikilvægt að pokunum sé vel lokað og þeir lagðir við götukantstein að kvöldi sunnudags. Garðaúrgangur, þ.m.t. greinar, mold og gras verður ekki hirt, aðeins lokaðir pokar með rusli.

Fleiri fréttir