Hrikaleg hætta sögð steðja að Skagafirði
Landeigendur segja vaxandi hættu á að Héraðsvötn brjóti sér leið í Húseyjarkvísl með hrikalegum afleiðingum fyrir beitar- og ræktarlönd. Vatn myndi leggjast að flugvellinum og neðri hluta Sauðárkróks. Brýnt sé að sveitarfélagið bregðist við.
Á vef Vísis.is er ógnin sögð stafa af Héraðsvötnum vegna breytinga sem orðið hafa á rennsli fljótsins.
Í bréfi til byggðarráðs Skagafjarðar gera landeigendur við Húseyjarkvísl og Héraðsvötn norðan Húseyjarkvíslar kröfu um tafarlausar aðgerðir.
„Um árabil hefur innrennsli úr Héraðsvötnum til vesturs um svokallaða Affalla og inn í Húseyjarkvísl farið vaxandi. Ef fram fer sem horfir og ekki verður brugðist við með varnaraðgerðum er vaxandi hætta á að Héraðsvötn brjóti sér leið til vesturs í Húseyjarkvísl og áfram og í hinn svonefnda Stóra-Skurð sem liggur austan Langholts, frá Holtstjörn að sunnan og norður til Miklavatns,“ útskýra landeigendurnir.
Vísað er í mikið flóð sem varð í desember 2006 sem vísbendingu um það sem kann að verða.
„Afleiðingarnar yrðu hrikalegar en ætla má að allt undirlendi frá Geldingaholti og út til Sauðárkróks færi undir vatn og stór ræktar- og beitarlönd bænda yrðu ónýtanleg með öllu. Vatn myndi leggjast að flugvellinum, hesthúsahverfinu og neðsta hluta Sauðárkróks,“ vara landeigendurnir við.
Rifjað er upp að árið 2003 lögðu fulltrúar Vegagerðarinnar til varnargarð úr grjóti á mótum Affalla og Héraðsvatna í landi Valla en að ekki hafa orðið af því vegna andstöðu viðkomandi jarðeiganda. Eftir skoðun í maí 2005 hafi héraðsfulltrúi Landgræðslunnar lagt til varnargarð milli Löngumýrarsporðs og Geldingaholtseyjar.
„Tíminn vinnur ekki með okkur í þessu máli og skjótra viðbragða er því þörf,“ segja landeigendurnir.
Byggðarráð Skagafjarðar fól Ástu Pálmadóttur sveitarstjóra að kanna málið. Ásta kveðst ekki hafa svör um málið að sinni.